Skráðu þig á næsta víngerðarnámskeið.
Námskeiðin verða haldin reglulega.
Næsta víngerðarnámskeið Ámunnar verður haldið þriðjudaginn 14. september 2010, kl. 18:00, í Ámunni að Háteigsvegi 1, 105 Reykjavík. Það stendur yfir í 1 klukkustund.
Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðsögn um hvernig eigi að búa til sitt eigið gæðavín, góð ráð og skilgreiningar á efnum sem notuð eru við víngerð, jafnframt því að fylgjast með hvernig framkvæma á víngerðina. Innifalið í verði eru þau áhöld sem nauðsynleg eru til heimavíngerðar. Þá fá þátttakendur 20% afslátt af öllum vörum í verslun Ámunnar á námskeiðskvöldi.
Námskeiðsgjald er kr. 13.990.-