Nýjar

VINSAMLEGA LESIÐ ALLAR LEIÐBEININGARNAR, EINNIG ALMENNU LEIÐBEININGARNAR HÉR AÐ NEÐAN, ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR!

1. FYRRI GERJUN

Gættu þess að gerjunarílátið taki að minnsta kosti 30 lítra. Ef gerjunarílátið er ekki með mælikvarða, merktu þá við 23 lítra á gerjunarílátinu með því að fylla á það með köldu vatni úr 23 lítra flöskunni sem fyrst er fyllt. Dragðu línu með tússpenna við yfirborð vatnsins á gerjunarílátinu. Þetta verður áfyllingarstigið (að neðan). Helltu vatninu og byrjaðu.

Þrífðu og sótthreinsaðu gerjunarílátið og lokið, skeiðina, hitamælinn, sykurflotvogina, mæliglasið og vínþjófinn. Skolaðu vandlega.

1. Bættu við 2-4 lítrum af soðnu heitu vatni neðst í sótthreinsaða gerjunarílátið. Hrærðu vel í vatninu og sáldraðu innihaldi pakka #2 (bentónít) hægt yfir yfirborðið. Hrærðu í 30 sekúndur til að tryggja jafna dreifingu og losa alla köggla.

2. Festu hálsinn á pokanum í kraganum efst á kassanum, fjarlægðu lokið varlega og helltu innihaldinu í gerjunarílátið ásamt bentónítlausninni. Bættu við 2 lítrum af köldu vatni í pokann til að skola út allan eftirstandandi lög og bættu honum við í gerjunarílátið.

3. Fylltu á gerjunarílátið að 23 lítra merkingunni með vatni sem er við stofuhita. Hrærðu vel í 30 sekúndur.

ATHUGIÐ: Það er nauðsynlegt að hafa lögunina 23 lítra fyrir virkni felliefna og stöðugleika endanlega vínsins. Ef um annað magn er að ræða verður endanleg afurð ekki rétt og mögulega verður ekki hægt að leysa þau vandamál sem upp kunna að koma.

4. Taktu sýni úr leginum og notaðu sykurflotvogina og mæliglasið til að kanna eðlisþyngdina. Álesturinn ætti að vera á milli 1,080-1,097, eftir því um hvaða víntegund er að ræða.

5. Ef eik eða ylliblóm eru í víngerðarpakkanum þínum skaltu rífa upp pakkann/pakkana og dreifa innihaldinu í gerjunarílátið núna. Ef fleiri en einn pakki af eik er í víngerðarpakkanum þínum skaltu bæta þeim öllum við. Hrærðu í þeim undir yfirborði vökvans.

6. Gættu þess að hitastigið á leginum sé á milli 22°-24°C (72°-75°F). Ekki halda áfram nema að hitastig safans sé á þessu bili.

7. BÆTTU VIÐ GERINU NÚNA. Opnaðu gerpakkann og sáldraðu innihaldinu yfir yfirborð lagarins. Ekki bleyta aftur í gerinu. Hrærðu því ekki í. Það mun hafa áhrif upp á eigin spýtur.

8. Lokaðu gerjunarkílátinu og settu á stað þar sem hitastig er 22°-24°C (72°-75°F). Ef gerjunarílátið er hannað fyrir loftlás skaltu setja hann í núna. Mundu að fylla loftlásinn til hálfs með vatni.

Gerjunin ætti að hefjast innan 24-48 klukkustunda. Eftir 5-7 daga skaltu halda áfram í næsta skref.

2. SEINNI GERJUN

Þvoðu og sótthreinsaðu fleytislönguna, flothitamælinn, mælikönnuna, vínþjófinn, 23 lítra flöskuna, gúmmítappann og loftlásinn. Skolaðu vel.

Eftir 5-7 daga skaltu taka sýni úr leginum og nota sykurflotvogina og mæliglasið til að kanna eðlisþyngdina. Hún ætti að vera 1,010 eða minna. Þú verður að umhella víninu (flytja það) í 23–lítra flösku þegar hér er komið.

ATHUGIÐ: Því lægra sem hitastig gerjunarinnar er því lengri tíma tekur það hana að ná þessu stigi. Ef eðlisþyngdin er ekki við eða fyrir neðan þessi mörk skaltu bíða og mæla með sykurflotvoginni daglega þar til eðlisþyngdin er komin niður í þetta.

1. Settu gerjunarílátið upp á sterkbyggt borð í a.m.k. 1 metra hæð.

2. Fleyttu vínið gætilega í hreina, sótthreinsaða 23 lítra flösku. Láttu þykkasta botnfallið sitja eftir, en gakktu úr skugga að sem mest af vökvanum flytjist yfir. Þannig myndast rými efst í flöskunni sem nemur u.þ.b. einum lítra.

Ekki fylla upp í flöskuna með vatni. Þetta rými er nauðsynlegt svo hægt sé að hræra og bæta í við stöðvun gerjunar (skref 3).

3. Settu gúmmítappann með loftlásnum í flöskuna. Mundu að fylla loftlásinn til hálfs með vatni.

4. Láttu flöskuna vera á gerjunarsvæðinu við hitastig sem nemur 22-24°C (72-75°F) í 10 daga. Það getur verið að þú sjáir ekki frekari gerjun í flöskunni. Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af þessu.

Eftir 10 daga geturðu haldið áfram í næsta skref.

3. GERJUN STÖÐVUÐ OG FELLING

Áður en lengra er haldið skaltu þrífa og sótthreinsa sykurflotvog, mælikönnu, vínþjóf og skeið. Skolaðu vel.

Eftir 10 daga skaltu athuga eðlisþyngdina. Hún ætti að vera 0,996 eða minna. Ef hún er meira en 0,996 skaltu bíða í tvo daga og mæla aftur. Mundu að hitastig fyrir neðan 22-24° (72-75°F) lengir gerjunartímann.

Fyrir Mezza Luna vín: þessi vín gerjast ekki undir 0,998. Þetta er eðlilegt. Þegar eðlisþyngd þessara víntegunda nær 0,998 geturðu haldið áfram með fellingu og stöðvað gerjun.

Ef þú staðfestir ekki álesturinn á sykurflotvoginni verður ekki almennileg felling í víninu!

ATHUGIÐ: EKKI umhella víninu fyrir stöðvun gerjunar og fellingu. Þetta sett krefst þess að þú hrærir aftur í botnfallinu þannig að það fari af stað í leginum. Sé víninu umhellt úr botnfallinu áður en gerjun er stöðvuð getur það komið í veg fyrir fellingu til frambúðar. Gættu þess að hræra öllu botnfallinu upp af botninum.

Vínið krefst þess að mjög vel sé hrært í á þessu stigi. Sé ekki hrært nægilega kröftuglega getur fast loft í víninu komið í veg fyrir fellingu. Við hverja hræringu skaltu hræra mjög kröftuglega. Hræritæki með bor (hafðu samband við söluaðila þinn) geta tryggt fullnægjandi gaslosun.

1. Leystu upp innihald pakkanna #3 (metabísúlfít) og #4 (sorbat) í 125 ml (½ bolli) af köldu vatni. Bættu á flöskuna og hrærðu af krafti í tvær mínútur til að blanda efnunum vel saman við lögunina og halda frá kolsýrumyndun. Gættu þess að hræra gerdreggjunum frá botninum og hrærðu nógu kröftuglega til að fá gasið út úr víninu.

Ef F-pakki hefur fylgt með vínsettinu þínu skaltu fylgja sérstökum leiðbeiningum að neðan. Ef F-pakki fylgir ekki, skaltu fara í skref 2.

SÉRSTAKAR LEIÐBEININGAR AÐEINS FYRIR SETT MEÐ F-PAKKA

Fjarlægðu 500 ml (2 bolla) af víni úr flöskunni til að pláss sé fyririnnihald pakkans/pakkanna. Geymdu þetta vín til að fylla upp á flöskunni (skref 3). Hristu pokann/pokana (F-pakki), fjarlægðu lokið og helltu innihaldinu gætilega ofan í flöskuna. Hrærðu vel í eina mínútu. Eðlisþyngdin mun nú sýna 0,998 og 1,007, allt eftir tegund víns. Farðu í skref 2.

2. Hristu innihald pakka #5 (Chitosan eða isinglass felliefni ). Skerðu horn pokans/pokanna gætilega og helltu innihaldinu ofan í flöskuna. Hrærðu vel í aðrar 2 mínútur til að gaslosa vínið. Gaslosir þú vínið ekki að fullu fellur það ekki.

3. Ef um er að ræða sett með F-pakka skal setja allt vín sem fjarlægt var aftur í flöskuna núna. Ef um önnur sett er að ræða má ekki fylla upp í flöskuna eða bæta við vatni. Sé fyllt upp breytir það eiginleikum vínsins.

4. Settu gúmmítappa með loftlás í flöskuna, mundu að fylla loftlásinn til hálfs með vatni.

5. Láttu flöskuna vera á gerjunarsvæðinu við hitastig sem nemur 22-24°C (72-75°F) í 14 daga til að fella vínið.

Eftir 14 daga ættir þú að geta sett vínið þitt á flöskur (skref 4).

4. SETT Á FLÖSKUR

Eftir 14 daga skaltu athuga tærleika vínsins með því að taka úr því lítið sýni í vínglas og skoða það í góðri birtu. Ef það er ekki fullkomlega tært skaltu láta það standa í sjö daga í viðbót.

Settu gruggugt vín ekki á flöskur: Það verður ekki tært í flöskunni.

Þvoðu og sótthreinsaðu þrjátíu 750 ml vínflöskur, fleytislöngu og flöskufylli. Skolaðu vel.

ATHUGIÐ: Ef þú ert ekki að setja á flöskur í þetta skipti verður þú að fjarlægja gúmmítappann með loftlásnum og setja í flöskuna tappa án gats og þétta vel. Þetta hjálpar til við að koma í veg fyrir oxun þar til þú setur vínið á flöskur. Ef þú ætlar að geyma vínið í flöskunni lengur en einn mánuð þarft þú að fylla á það með svipuðu víni sem nemur minna en 2 tommum (um það bil breidd tveggja fingra) frá botni tappans sem er án gats. Þú getur líka flutt vínið í minna ílát til að fjarlægja höfuðrými og draga úr hættu á oxun. Ef þú vilt sía vínið ættir þú að gera það nú, strax á undan átöppun. Ef þú hefur áhyggjur af því að hrófla við dreggjunum á botni flöskunnar þegar sett er á flöskur skaltu þvo og sótthreinsa gerjunarílátið eða flöskuna, flytja eða sía vín inn í hana og setja á flöskur þaðan.

Sett frá Winexpert hafa mjög lágt súlfít í samanburð við vín á markaðnum. Ef þú vilt láta vínið eldast í meira en sex mánuði, eða ef þú þarft að gaslosa aftur, skaltu bæta við aukaskammti af metabísúlfít-rotvörn til að koma í veg fyrir oxun. Til að gera þetta skaltu leysa upp 1,5 gr. (¼ teskeið) af metabísúlfít-rotvörn í 125 ml (½ bolli) af köldu vatni og hrærðu þessu gætilega út í vínið í hreinu flöskunni. Þetta auka súlfít hefur ekki áhrif á bragð eða hversu snemma er hægt að neyta vínsins. Jafnvel þótt þú sért bæði að gaslosa og láta vínið eldast í meira en sex mánuði skaltu bara bæta við 1,5 grömmum (¼ teskeið) af aukasúlfíti. Meira þarf ekki.

1. Fleyttu vínið í hreinar, sótthreinsaðar flöskur og lokaðu þeim með korktappa. Gættu þess að skilja eftir pláss upp á tvær fingurbreiddir neðst á korkinum og jafnaðu vínið í hverri flösku.

2. Láttu flöskurnar standa í þrjá daga áður en þær eru lagðar á hliðina þannig að korktappinn nái að tútna út og þétta/loka flöskunni. Geymdu flöskur á dimmum, köldum stað, þar sem hitastig er jafnt.

Prófaðu að bíða í að minnsta kosti einn mánuð áður en þú bragðar vínið - það mun þroskast mikið eftir þrjá til sex mánuði.

Ef spurningar vakna eða einhverjar athugasemdir koma upp? Hafðu þá samband við okkur á aman@aman.is eða www.aman.is

LEIÐBEININGAR – VINTNERS RESERVE 10L

• Lestu allar leiðbeiningar áður en þú byrjar.

• Hreinsaðu allan búnað með lyktarlausu víngerðarhreinsiefni (sem söluaðili þinn mælir með) og skolaðu vandlega með heitu vatni til að fjarlægja allar leifar.

• Sótthreinsaðu búnaðinn með því að skola hann með metabísúlfít-lausn. Til að gera þessa lausn leysirðu upp 50 grömm (3 matskeiðar) af metabísúlfít-dufti í fjórum lítrum af köldu vatni. Þú þarft að dýfa búnaðinum í eða úða hann með þessari súlfít-lausn. Láttu drjúpa af þar til hann er þurr eða skolaðu með köldu vatni. Afgangslausn má geyma í vel lokuðu íláti í tvo mánuði.

• Notaðu gott drykkjarvatn með þessu setti. Ef þú ert ekki viss um gæði vatnsins skaltu nota flöskuvatn.

• Það geta verið margir pakkar af hverju efni í þessum pakka. Bættu við öllum pökkum þegar mælt er fyrir um slíkt.

• Þetta sett getur innihaldið einn eða fleiri minni poka (F-pakka), sem þarf að nota eftir að gerjun hefur verið stöðvuð og áður en að fellingarferli kemur. Geymist á köldum, þurrum stað þar til þörf er á að nota. Bættu ekki innihaldi F–Pack út í gerjunarílátið á fyrsta degi!

• Upphafshitastig vínsins er mikilvægt. Ef gerið er sett út í of kalda lögun þá verður engin almennileg gerjun né felling. Gakktu aftur úr skugga um að hitastig lagarins sé á milli 22°-24°C (72°-75°F) áður en þú bætir gerinu við.

• Fjarlægðu kóðalímmiðann efst af boxinu og límdu hann á þessar leiðbeiningar eða á víngerðarskráningarbókina þína. Söluaðilinn þinn þarf upplýsingar sem eru á þessum límmiða ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir. Skrifaðu niður víngerðina og dagsetningu byrjunar.

Tegund víns: ______________________________

Dagsetning: ______________________________

BIRGÐALISTI

Vintners Reserve settið þitt inniheldur:

• Stóran poka með legi

• Ger

• Pakka #2 (bentónít, náttúrulegur leir sem notaður er til að fella út ger og ýmis prótein sem gera gerjaðan vökva skýjaðan)

• Pakka #3 (metabísúlfít, rotvörn)

• Pakka #4 (sorbat, gerstopp)

• Pakka #5 (felliefni)

Getur einnig innihaldið:

• Pakka af eikardufti eða flögum

• Pakka af ylliblómum

• F-pakka (minni poki með legi)

• Ef þú hefur fleiri en einn af einhverjum pakka skaltu bæta þeim öllum við þegar mælt er fyrir um slíkt.

Nauðsynlegur búnaður:

• Gerjunarílát með loki (30 lítra fata)

• Löng hræriskeið (úr plasti eða ryðfríu stáli)

• Mælikanna

• Sykurflotvog og mæliglas

• Flothitamælir

• Vínþjófur

• Fleytislanga

• Flaska (úr gleri eða plasti), 23 lítra geymslugeta

• Gúmmítappi með gati og loftlás

• Gúmmítappi án gats

• Efni til að þrífa áhöld

• Sótthreinsiefni (Metabísúlfít-duft)

• Þrjátíu 750 ml vínflöskur, þrjátíu korktappar og korktappatroðari

Settið tekur 4 til 6 vikur í framleiðslu.

 
Prentvæn útgáfa