IP-5 Klórsódi 300gr
IP-5 er sótthreinsandi þvottaduft sem inniheldur ójónað yfirborðsvirkt efni, sóda, afherðingarefni, tæringarverjandi efni og þurrklór. IP-5 er Lágfreyðandi hreinsiefni fyrir matvælaiðnað með sótthreinsandi og bleikjandi eiginleika. Hreinsar vel fitu og eggjahvítuefni og er því hentugt til notkunar á bökkum, borðum, áhöldum, tækjum, gólfum og veggjum í matvælaiðnaði. Inniheldur klór til sótthreinsunar.
Blandið 2 matskeiðum af IP-5 í 25 litra af vatni og látið standa í 20-30 mínútur og skolið vel 2-3 sinnum með köldu vatni. Notið gúmmíhanska.
IP-5 er ætandi. Hættulegt við inntöku. Myndar eitraða lofttegund í snertingu við sýru. Geymist á þurrum stað. Berist efnið í augu, skolið þá strax með miklu vatni og leitið læknis. Notið viðeigandi hlífðarhanska og hlífðargleraugu/andlitsgrímu. Varist innöndun reyks við bruna eða sprengingu. Geymist þar sem börn ná ekki til.