Leiðbeiningar fyrir víngerð (4-8 vikur) - Einföld skref

1. Gerjun (Dagur 1)

1.      Hreinsið tæki og ílát: Þrífið og sótthreinsið allt sem notað er.

2.      Bætið 2-4 lítrum af heitu vatni í gerjunarílát og hrærið innihaldi pakka #2 (bentonite) saman við.

3.      Hellið djúsnum (úr stóra pokanum) í ílátið og hreinsið pokann að innan með vatni.

4.      Fyllið upp í 23 lítra með köldu vatni og hrærið.

5.      Ef eikarflögur eða duft fylgir, bætið þeim við núna (ekki kubbum).

6.      Skráið sykurmælingu með sykurflotvog (valfrjálst).

7.      Sáldrið gerinu yfir lögunina. Ef það eru tveir pakkar af geri, notið báða.

8.      Lokið ílátinu með vatnslás og geymið við 20-25°C.


2. Stöðvun gerjunar og kolsýrutæming (Dagur 14)

1.      Mælið með sykurflotvog: Ef lögunin hefur ekki náð réttu gildi, bíðið 48 klst og mælið aftur.

2.      Fleytið víninu yfir í hreina 23 lítra glerflösku.

3.      Bætið við efnum úr pokum (Potassium Metabisulfite og Potassium Sorbate).

4.      Hrærið vel eða notið borvél til að losa kolsýru úr víninu.

5.      Hrærið innihald pokans #5 Kieselsol saman við (ef tveir pokar, notið aðeins einn núna).

6.      Lokið flöskunni með vatnslás og látið standa í 24 klst.


3. Felling (Dagur 15 og áfram)

1.      Bætið innihaldi minni pokans (ef hann fylgir) saman við vínið.

2.      Hrærið innihald pokans #6 Chitosan út í.

3.      Ef annar poki af #5 Kieselsol fylgir, bætið honum við núna.

4.      Ef eikarkubbar fylgja, bætið þeim við núna.

5.      Geymið flöskuna við 20-25°C í samræmi við fellingartímann hér að neðan:

o   4 vikur: 14 dagar

o   5 vikur: 20 dagar

o   6 vikur: 27 dagar

o   8 vikur: 41 dagur

6.      Snúið flöskunni varlega eftir 5 daga til að losa efni af hliðum flöskunnar.


4. Grugghreinsun og öldrun (Dagur 30)

1.      Ef vínið er ekki orðið tært, bíðið í 7-14 daga.

2.      Fleytið vínið yfir í hreina flösku og skiljið botnfallið eftir.

3.      Ef sía á vínið, gerið það núna (aldrei sía skýjað vín).

4.      Látið vínið standa í flöskunni í 2 daga ef það er ekki síað.


5. Setjið á flöskur

1.      Fleytið vínið í hreinar, sótthreinsaðar flöskur og lokið með korktöppum.

2.      Látið flöskurnar standa í 3 daga til að korktapparnir tútni út.

3.      Geymið flöskurnar á hliðinni til að halda korknum rökum.

 

Vinosol - 7 daga víngerð (einföld skref)

1. Undirbúningur

  • Tæki og áhöld: 2 x 30 lítra tunnur, fleytislanga, hitamælir, vatnslás, sykurflotvog.
  • Hreinsun: Þrífið öll áhöld með sótthreinsiefni (t.d. IP-5 klórsóda). Skolið vel með köldu vatni.

2. Blöndun

1.      Hellið 5 lítrum af heitu vatni í gerjunarílát.

2.      Leysið upp 4 kg sykur fyrir léttvín eða 5 kg fyrir sterkvín.

3.      Bætið við vínþykkni og köldu vatni, fyllið ílátið upp í 23 lítra.

4.      Hrærið og mælið sykurmagn með sykurflotvog.

5.      Setjið innihald poka 7E (vínger) út í og hrærið vel.

6.      Lokið ílátinu, setjið vatnslás á og geymið við 20-25°C. Gerjun hefst innan sólarhrings.

3. Gerjun

  • Hristið ílátið daglega til að losa koltvísýring.
  • Eftir 3-5 daga, smakkið vínið eða notið sykurflotvog. Þegar vínið er á bilinu 0 til +5 (þurrt), er það tilbúið fyrir næsta skref.

4. Stöðvun gerjunar

1.      Bætið við innihaldi poka H (gerstoppi).

2.      Flytjið ílátið á kaldari stað.

3.      Hrærið eða hristið ílátið nokkrum sinnum í 1 dag til að losa koltvísýru.

5. Felling

1.      Setjið innihald poka 7J (Kiselsol) út í og hrærið.

2.      Setjið innihald poka 7K (gelatín) út í og hrærið.

3.      Látið vínið standa óhreyft í 1 dag til að tærast.

6. Fleyting

  • Fleytið varlega með fleytislöngu í annað ílát án þess að taka botnfallið með.

7. Smökkun og sæting

  • Smakkið vínið og sætið það ef þörf er á. Leystu upp smá sykur í víninu og bættu við í litlum skömmtum. Notið sykurflotvog til að fylgjast með sætunni.

8. Átöppun

  • Þrífið flöskur og sótthreinsið. Setjið vínið á flöskur og geymið í liggjandi stöðu á þurrum og svölum stað.

Nokkur góð ráð:

  • Hitastig: Haldið víni við 20-25°C. Kaldara = lengri gerjun.
  • Þroskun: Vínið verður betra með geymslu.

 

Solomon Grundy 7-10 daga víngerð - Einföld skref

1. Undirbúningur

  • Hreinsið tæki: Notið IP-5 klórsóda til að sótthreinsa allt.

2. Blöndun og gerjun

1.      Hellið 5 lítrum af sjóðandi vatni í gerjunarílát.

2.      Bætið við 3 kg sykri fyrir hvítvín/rósavín eða 4 kg sykri fyrir rauðvín. Hrærið þar til sykurinn er uppleystur.

3.      Hellið innihaldinu úr víngerðarpakkanum í vatnið (ekki "Wine flavour sachet" ennþá) og skolið pakkann vel.

4.      Bætið köldu vatni út í þar til blandan nær 23 lítrum.

5.      Setjið pokana "Wine yeast" og "Yeast nutrient" út í, hrærið vel.

6.      Setjið vatnslásinn á og geymið við 20-25°C. Gerjun tekur um 5 daga (lengur ef kaldara er).

3. Lok gerjunar

  • Notið sykurflotvog til að athuga að mæling sé undir -5, eða bíðið þar til það hættir að "bubbla" í vatnslásnum.
  • Þegar gerjun er lokið, bætið við "Stabiliser" og "Wine Finings A" (og "Sweetener" fyrir sætt vín). Hrærið vel í 2 mínútur til að losa kolsýru. Látið standa í 1 klst.

4. Felling.

1.      Eftir 1 klst, bætið við "Wine Finings B", hrærið í 30 sekúndur.

2.      Látið standa í 1 klst og bætið við "Wine compound" og aftur "Wine Finings A". Hrærið í 30 sekúndur.

3.      Látið vínið standa yfir nótt til að tæra sig.

5. Fleyting og sæting

  • Hellið víninu varlega í annað ílát án þess að grugga botninn.
  • Til að sæta: Leysið 200 g sykur í ½ lítra af víninu og bætið því smám saman út í restina, smakkað á milli.

6. Átöppun

  • Þegar vínið er tært, setjið það á flöskur eða Bag-In-Box (beljur).
    • Flöskur: Skiljið eftir 5 cm pláss fyrir korktappa. Látið flöskur standa í 1-2 daga áður en þær eru lagðar á hliðina.
    • Bag-In-Box: Fyllið álpokana eins og hægt er og lofttæmið.

Góð ráð

  • Hitastig gerjunar: Best er 21-26°C. Of heitt=verra vín, of kalt=lengri gerjun.
  • Sótthreinsun: Allt sem snertir vínið þarf að vera hreint.
  • Fleyting: Notið fleytislöngut til að flytja vínið án þess að taka grugg með.
  • Vandamál:
    • Engin gerjun: Athugaðu hvort sé froða eða loftbólur. Ef svo er, þá er kúturinn líklega ekki alveg lokaður.
    • Ekki lokið gerjun: Bíðið nokkra daga og smakkið.
    • Ekki tært vín: Kaldara hitastig hjálpar, og losið kolsýru betur.

 

Leiðbeiningar fyrir Chateau Concentrate – einföld skref


1. Hreinsun og undirbúningur

  • Sótthreinsið öll áhöld og ílát með IP-5 klórsóda og skolið vel með köldu vatni.

2. Blöndun

1.      Hellið 5 lítrum af heitu vatni í gerjunarílát og leysið upp 3-4 kg sykur.

2.      Bætið við vínþykni og fyllið ílátið upp í 23 lítra með köldu vatni.

3.      Bætið innihaldi poka nr. 1 út í og hrærið.

4.      Lokið ílátinu með vatnslás og geymið við 20-25°C. Gerjun hefst innan 1 sólarhrings.


3. Gerjun


           Sykurflotvog ætti að sýna -5 áður en gerjun er stöðvuð.


4. Stöðvun gerjunar

1.      Setjið innihald poka nr. 2 út í.

2.      Flytjið ílátið á kaldari stað  og látið standa í 1 dag.

3.      Hristið ílátið vel eða hrærið í ílögn til að losa alla kolsýru úr víninu.


5. Felling

1.      Bætið við innihaldi poka nr. 3 og hrærið.

2.      Bætið við innihaldi poka nr. 4 og hrærið.

3.      Látið ílátið standa óhreyft í 1-2 daga til að vínið falli.


6. Fleyting

  • Þegar vínið er tært, fleytið því varlega yfir í hreint ílát með fleytislöng án þess að taka botnfall með.

7. Sæting og lokahandtök

1.      Ef poki nr. 9 fylgir, bætið honum við og hristið.

2.      Smakkið vínið og bætið smám saman við sykur ef óskað er eftir sætara víni.

3.      Ekki sæta vínið fyrr en það er tært og tilbúið.

 

Leiðbeiningar fyrir Nonne Noir 5L víngerð – Einföld skref


1. Undirbúningur

  • Hreinsun: Þrífið og sótthreinsið öll tæki og ílát með IP-5 klórsóda. Skolið vel með köldu vatni.

2. Blöndun

  1. Hellið 5 lítrum af heitu vatni í gerjunarílát.
  2. Fyrir portvín, bætið við 1,5 kg af sykri og hrærið vel.
  3. Bætið vínþykkni út í og fyllið ílátið með köldu vatni að 23 lítra markinu. Hrærið.
  4. Hellið innihaldi poka nr. E út í og hrærið aftur.
  5. Lokið með vatnslás og geymið við 20-25°C. Gerjun hefst innan 1-2 daga.

3. Gerjun

  • Eftir 10-20 daga (15-30 daga fyrir sterk vín), mælið sykurhlutfall. Þegar sykurflotvog sýnir 0 til -5 er vínið tilbúið fyrir næsta skref.

4. Fleyting og gerstopp

  1. Fleytið víninu yfir í hreint ílát með hævert.
  2. Bætið við innihaldi poka H og hrærið vel.
  3. Fyrir hvítvín, bætið við innihaldi pokanna J og K, og hrærið vel.
  4. Hristið eða hrærið í ílátinu í 2 daga til að losa kolsýru. Lengið tímann ef kolsýran er ekki farin.

5. Tæring

  1. Fleytið aftur í hreint ílát og látið standa óhreyft í 2-5 daga. Flytjið ílátið á kaldari stað  til að flýta fyrir.
  2. Þegar vínið er tært, fleytið það yfir í hreint ílát án þess að taka botnfallið með.

6. Sæting og átöppun

  1. Smakkið vínið. Ef óskað er eftir sætara víni, bætið smá sykur út í í einu. Notið sykurflotvog til að fylgjast með.
  2. Tappið víninu á flöskur eða Bag-In-Box (beljur). Geymið flöskur á hliðinni á svölum og þurrum stað.

 

 

Leiðbeiningar fyrir bjórgerð – einföld skref.


1. Undirbúningur.

  • Sótthreinsið allt sem kemst í snertingu við bjórgerðina (áhöld, ílát, flöskur). Notið IP-5 klórsóda og skolið vel.

2. Blöndun.

  1. Leggið dósina eða pokan með innihaldinu í heitt vatn til að mýkja hana.
  2. Hellið innihaldinu  í gerjunarílát og skolið með  vatni.
  3. Bætið við 1 kg kornsykri og 2-3 lítrum af sjóðandi vatni. Hrærið þar til allt er uppleyst.
  4. Fyllið ílátið með köldu vatni að 25 lítra markinu. Hitastig ætti að vera 20-25°C.
  5. Sáldrið gerinu yfir lögunina. Setjið vatnsfylltan loftlás á lokið.

3. Gerjun.

  • Geymið við 18-25°C í 5-10 daga.
  • Gerjun er lokið þegar sykurmæling er stöðug í 2 sólarhringa (oft 1010-1005).

4. Fleyting og eftirgerjun.

  1. Fleytið bjórnum í hreinan kút.
  2. Hrærið 160g kornsykurs saman við bjórinn.
    • Ef sykur er settur í hverja flösku: 1 tsk/lítra.
  3. Fleytið í flöskur og lokið.
  4. Látið flöskur standa við stofuhita í 5-7 daga til eftirgerjunar.

5. Lagerun.

  • Látið bjórinn þroskast í 15-30 daga. Þetta bætir bragðið.

 

Leiðbeiningar fyrir berja-, fífla- og rabbabaravín – Einföld skref


1. Hráefni og undirbúningur.

  • Berjavín: 10L hrásaft (án hrats) og 5 kg sykur.
  • Rabbabaravín: 15 kg rabbabari og 5 kg sykur.
  • Fíflavín: 15L blóm, 5-6 kg sykur, 10 sítrónur, 6 appelsínur, 750 ml grapeþykkni eða 2 kg rúsínur.
  • Þvoið hráefnið í sjóðandi vatni til að drepa villigerla.

2. Blöndun.

1.      Rabbabaravín: Saxið rabbabarann, bætið yfir 6-8L af heitu vatni og hrærið í 24 klst. Hrærið 1,5 g krít á hvert kg hráefnis saman við. Látið standa yfir nótt, fleytið svo saftinni yfir í hreint ílát.

2.      Fíflavín: Takið stilka frá, bætið við heitu vatni og hrærið daglega í 2-3 daga. Sjóðið lögunina með ávaxtaberki í 1 klst og bætið sykri út í.

3.      Fyrir allar tegundir: Hellið heitu vatni yfir og fyllið að 23-25L markinu. Notið sykurflotvog (1080-1085).

4.      Hrærið Pectolase (Poki P) saman við og bætið svo geri og gernæringu (Poki A) út í. Ef Bentonit er notað, hrærið það líka saman við lögunina.


3. Gerjun.

  • Gerjun hefst á 1-2 dögum (geymið við 20-25°C).
  • Hrærið daglega (kvölds og morgna).
  • Eftir 3-4 daga umhellið löguninni til að fjarlægja hrat, annars getur vínið orðið beiskt.
  • Látið gerjun halda áfram þar til sykurflotvog sýnir 1000-995 (0 til -5).

4. Gerstopp og kolsýrutæming.

1.      Fleytið víninu yfir í annan kút og bætið við Gerstoppi (Poki B).

2.      Eftir 1 dag, athugið hvort kolsýra sé til staðar. Ef svo er, hristið kútinn daglega þar til kolsýran er farin.


5. Tæring

1.      Bætið felliefnum (Kiselsol og Chitosan, Pokar C+D) út í.

2.      Látið vínið standa óhreyft í 2-3 vikur með vatnslás á.


6. Átöppun og geymsla.

1.      Setjið vínið á flöskur þegar það er orðið tært.

2.      Látið flöskurnar standa í 2 daga, leggið þær síðan á hliðina.

3.      Geymið á svölum og dimmum stað. Vínið batnar við að þroskast með tímanum.