Bjór-Brew Canada

Leiðbeiningar fyrir samsett bjórgerðarefni

Sótthreinsið allt sem kemst í snertingu við bjórgerðarefnið (áhöld, gerjunarílát og flöskur) áður en hafist er handa. Notið IP-5 klórsóda.

Hellið innihaldi dósarinnar í gerjunarílátið. Gott er að leggja dósina fyrst í heitt vatn til að mýkja innihaldið og skola hana síðan að innan með sjóðandi vatni. Ekki nota hitaveituvatn! Bætið 1kg af sykri útí (hægt er að nota strásykur, en betra er að nota kornsykur eða maltglúkósa). Hellið 2 - 3 lítrum af sjóðandi vatni samanvið og hrærið vel til að leysa upp.

Bætið köldu vatni út í þar til heildarmagn nær 25 lítrum. Þá ætti hitastig lögunarinnar að vera ca. 20-25°C. Ef hitastigið er hærra, bíðið þar til það hefur náð niður fyrir 25°C. Sykurmæling á þessu stigi ætti að vera ca. 1040 (þó mismunandi eftir tegundum). Stráið gerinu yfir lögunina. Nú hefst gerjunin og hitastig skal vera 18 - 25°C.

Gerjun tekur yfirleitt 5-7 daga og telst vera hætt þegar sykurmæling sýnir sömu tölu í 2 sólarhringa. Þetta er yfirleitt á bilinu 1010 - 1005 (mismunandi eftir tegundum). Fleytið bjórnum nú á annan hreinan kút. Hrærið 160g af strásykri samanvið, og fleytið síðan á flöskur. Einnig er hægt að setja sykurinn út í hverja flösku fyrir sig. Í því tilfelli væri sett 1 tsk fyrir hvern lítra. Lokið nú flöskunum og látið standa við stofuhita í 5 - 7 daga meðan eftirgerjun fer fram.

Gott er að láta bjórinn lagerast í 15 - 30 daga til viðbótar en við það batnar bragðið til muna.

 
Prentvæn útgáfa