Vinosol-þykkni 1L

VINOSOL

Vinosol 7 daga vín eru undir stöðugu eftirliti og þróun til að tryggja bestu gæði hverju sinni. Til þess að vel til takist ber að fara nákvæmlega eftir leiðbeiningunum.

Víngerðartíminn er 7 dagar undir venjulegum kringumstæðum (herbergishiti um 20 til 25°C).

Forðist þurk og sólskin. Sé herbergishiti undir 25°C þá verður víngerðartíminn lengri.

Áður en hafist er handa við víngerð þá verða að vera til staðar, 2 stk 30 lítra tunnur, hævert, hitamælir, vatnslás, tappi/gúmmípakkning og sykurflotvog.

INNIHALD:

Fyrir utan vatn og sykru – allt efni sem þarf til að búa til 20 til 23 lítra, 30 flöskur, af góðu léttvíni.

1L vínþykkni (þynnist með vatni og 4 kg af sykri fyrir léttvín eða 5 kg fyrir sterkvín til að fá 20 til 23L lögun). Poki 7E: Vínger, Poki H: Gerstopp (Potassium sorbate E202 & Potassium metabisulfite E224), Poki 7J: Kiselsol, Poki 7K: Gelatín.

HREINLÆTI/UNDIRBÚNINGUR

A. Sótthreinsið öll áhöld og ílát í fyrir notkun. Þetta er hægt að gera með IP-5 klórsóda eða öðrum sótthreinsandi efnum ætluðum fyrir víngerð. Eftir sótthreinsun skal skola vel 2-3 sinnum með köldu vatni. Aldrei nota sápu, eða önnur hreinsiefni ætluð til heimilisnota, þar sem þessi efni geta skemmt vínið og jafnvel drepið gerið.

BLÖNDUN

B. Hellið 5 lítrum af heitu, soðnu vatni í gerjunarílátið og leysið upp 4 kg af sykri (5 kg fyrir sterk vín) með því að hræra vandlega saman.

C. Hellið vínþykkninu í gerjunarílátið.

D. Bætið við köldu vatni út í blönduna til að ná 20 til 23 lítrum og hristið/hrærið vel. Á þessu stígi er hægt að finna út með sykurflotvog hver styrkleiki vínsins verður.

E. Hellið innihaldi poka nr. 7E samanvið og hristið/hrærið vel.

F. Lokið ílátinu og setjið vatnslás í. Vatnslásinn skal hafður í ílátinu þangað til vínið er komið á flöskur. Hitastig fyrir gerjunina skal vera á bilinu 22-25 °C. Gerjun hefst yfirleytt innan sólarhrings.

GERJUN

G. Meðan á gerjun stendur er gott að hrista gerjunarílátið á hverjum degi til að losa koltvísýring úr víninu og þar með hjálpa gerinu að vinna. Þegar lengra líður á gerjun lengist bilið milli loftbólanna í vatnslásnum.

H. Eftir 3 til 5 daga, bragðið á víninu eða notið sykurflotvog til að kanna ástand þess. Ef það er of sætt, bíðið þá með að stöðva gerjun þar til þurrara bragð er af víninu og haldið þá yfir á næsta stig. Vínið skal ná á bilinu 0 til +5 á sykurflotvog, undir svarta skalanum, áður en gerjun er stöðvuð.

GERJUN STÖÐVUÐ

I. Setjið nú innihald poka nr. H út í gerjunarílátið. Flytjið gerjunarílátið á kaldari stað, hitastig 10-15°C. Hristið ílátið eða hrærið í því nokkrum sinnum í 1 dag til að losa alla kolsýru úr víninu. Lengið þennan tíma eftir þörfum, ef ekki hefur tekist að losa alla kolsýru úr, því ef hana er enn að finna í víninu, fellur vínið ekki vel.

FELLING

J. Hellið innihaldi poka nr. 7J beint út í vínið og hristið/hrærið vel.

K. Hellið innihaldi poka nr. 7K og hristið/hrærið vel.

L. Ílátið á nú að fá að standa óhreyft í 1 dag svo vínið geti fallið. Best er að hafa það hátt upp, t.d. á borði, til að þurfa ekki að hreyfa það þegar að fleytingu kemur.

FLEYTING

M. Eftir 1 dag þegar vínið er orðið tært skal fleyta því yfir í annað ílát. Nota skal hævert og setja skal hann varlega í vínið til að hræra ekki upp botfallinu.

SMÖKKUN OG LOKAHANTÖK

N. Bragðið á víninu og ef óskað er eftir sætara víni skal leysa upp sykur í víninu. Til að vínið verði ekki of sætt, setjið eingöngu lítið sykurmagn út í í einu. Öruggari aðferð við að sæta vín er að nota sykurflotvog.

SÆTING MEÐ SYKURFLOTVOG

O. Ekki er æskilegt að sæta vínið fyrr en það er tilbúið og orðið tært. Fylgist með sætunni á sykurflotvog og æskilegt er að vínið sé innan eftirfarandi marka:

Tegundir

Red Wine - 5 - + 0, Rose Wine + 5 - + 0, White Wine + 5 - + 0. Ef þú vilt hafa vínið þitt einhvern veginn öðruvísi en taflan segir til um getur þú að sjálfsögðu haft það annað hvort þurrara eða sætara eins og lýst er í lið N.

P. Vínið er nú tilbúið.

ÁTÖPPUN

Q. Flöskur skal þrífa eins og gerjunarílátin og skola vel með köldu vatni á eftir.

R. Öll vín batna mikið við að þroskast. Þetta á einnig við um Vinosol 7 daga vínin. Þau batna verulega fyrstu 3-5 mánuðina. Mælt er með að láta flöskurnar liggja á þurrum og svölum stað.

S. Vakni einhverjar spurningar á meðan víngerðinni stendur er sjálfsagt að hafa samband við Ámuna ehf og starfsmenn munu leiðbeina þér.

 
Prentvæn útgáfa