Almennar
LEIÐBEININGAR – VINTNERS RESERVE 10L
• Lestu allar leiðbeiningar áður en þú byrjar.
• Hreinsaðu allan búnað með lyktarlausu víngerðarhreinsiefni (sem söluaðili þinn mælir með) og skolaðu vandlega með heitu vatni til að fjarlægja allar leifar.
• Sótthreinsaðu búnaðinn með því að skola hann með metabísúlfít-lausn. Til að gera þessa lausn leysirðu upp 50 grömm (3 matskeiðar) af metabísúlfít-dufti í fjórum lítrum af köldu vatni. Þú þarft að dýfa búnaðinum í eða úða hann með þessari súlfít-lausn. Láttu drjúpa af þar til hann er þurr eða skolaðu með köldu vatni. Afgangslausn má geyma í vel lokuðu íláti í tvo mánuði.
• Notaðu gott drykkjarvatn með þessu setti. Ef þú ert ekki viss um gæði vatnsins skaltu nota flöskuvatn.
• Það geta verið margir pakkar af hverju efni í þessum pakka. Bættu við öllum pökkum þegar mælt er fyrir um slíkt.
• Þetta sett getur innihaldið einn eða fleiri minni poka (F-pakka), sem þarf að nota eftir að gerjun hefur verið stöðvuð og áður en að fellingarferli kemur. Geymist á köldum, þurrum stað þar til þörf er á að nota. Bættu ekki innihaldi F–Pack út í gerjunarílátið á fyrsta degi!
• Upphafshitastig vínsins er mikilvægt. Ef gerið er sett út í of kalda lögun þá verður engin almennileg gerjun né felling. Gakktu aftur úr skugga um að hitastig lagarins sé á milli 22°-24°C (72°-75°F) áður en þú bætir gerinu við.
• Fjarlægðu kóðalímmiðann efst af boxinu og límdu hann á þessar leiðbeiningar eða á víngerðarskráningarbókina þína. Söluaðilinn þinn þarf upplýsingar sem eru á þessum límmiða ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir. Skrifaðu niður víngerðina og dagsetningu byrjunar.
Tegund víns: ______________________________
Dagsetning: ______________________________
BIRGÐALISTI
Vintners Reserve settið þitt inniheldur:
• Stóran poka með legi
• Ger
• Pakka #2 (bentónít, náttúrulegur leir sem notaður er til að fella út ger og ýmis prótein sem gera gerjaðan vökva skýjaðan)
• Pakka #3 (metabísúlfít, rotvörn)
• Pakka #4 (sorbat, gerstopp)
• Pakka #5 (felliefni)
Getur einnig innihaldið:
• Pakka af eikardufti eða flögum
• Pakka af ylliblómum
• F-pakka (minni poki með legi)
• Ef þú hefur fleiri en einn af einhverjum pakka skaltu bæta þeim öllum við þegar mælt er fyrir um slíkt.
Nauðsynlegur búnaður:
• Gerjunarílát með loki (30 lítra fata)
• Löng hræriskeið (úr plasti eða ryðfríu stáli)
• Mælikanna
• Sykurflotvog og mæliglas
• Flothitamælir
• Vínþjófur
• Fleytislanga
• Flaska (úr gleri eða plasti), 23 lítra geymslugeta
• Gúmmítappi með gati og loftlás
• Gúmmítappi án gats
• Efni til að þrífa áhöld
• Sótthreinsiefni (Metabísúlfít-duft)
• Þrjátíu 750 ml vínflöskur, þrjátíu korktappar og korktappatroðari
Settið tekur 4 til 6 vikur í framleiðslu.